31 október 2005

Ég get varla beðið eftir að lesa þessa. Búin að panta hana í jólagjöf.
Jón Kalman Stefánsson hefur lengi verið minn uppáhaldsrithöfundur. Ég á allar fyrri bækur hans og skrifaði BA-ritgerðina mína um hann. Mæli með því að þeir sem hafa ekki kíkt á verk hans ennþá geri það sem fyrst.
25 október 2005

Í gær fór ég í kvennagönguna. Þar var mikið af konum en lítið af baráttuhug, flestar bara í skemmtigöngu. En fær fólk vonandi til að hugsa út í jafnrétti.
Annars fór helgin eins og ég óskaði mér, það var lærdómur, gönguferð, bókalestur, nett drykkja og skemmtileg bæjarferð. Og svo fór sunnudagurinn allur í vinnu.
21 október 2005
Það er að koma helgi og ég finn ekki fyrir alkahólistanum í mér, reyndar hef ég ekki fundið fyrir honum í nokkurn tíma. Um seinustu helgi var það bara sveitasælan og núna ætla ég að vera í bænum og langar bara ekki á neitt skrall. Var kannski bara að hugsa um bíó, góða bók, líkamsrækt, vakna snemma, vinna sunnudag, jafnvel læra og fara í góða gönguferð ef veðrið verður sæmilegt.......annars er aldrei að vita hvað verður.
17 október 2005

Byrjaði á þessari um helgina og er komin nokkuð langt. Mjög vel skrifuð og áhugaverð bók um gott ljóðskáld.
Fjarst í eilífðar útsæ
vakir eylendan þín.
Nóttlaus vor-aldar veröld
þar sem víðsýnið skín.
Stephan G. Stephansson
10 október 2005

Þetta teldist líklega afrek hjá 4 ára barni en hjá 27 ára manneskju þykir þetta fyndið og svolítið sorglegt. Ég var að endurnýja kynni mín við teiknidótið Paint í tölvunni og gat ekki gert betur.
05 október 2005
04 október 2005

Kannski ég fari út í myndablogg.
Byrja á þessum hjartaknúsara sem hefur verið í miklu útlitsuppáhaldi hjá mér í langan tíma.
02 október 2005
Réttardagur


Afhverju er ekki alltaf haust? Ekki nóg með að náttúran skarti sínu fegursta á haustin, að mínu mati, en þá eru líka göngur og réttir.
Ég er að verða 28 ára í nóvember og jafn oft hef ég farið í réttir. Ég var orðin að vænum einstaklingi í maganum á móður minni í september árið 1977, svo ekki missti ég af réttunum það árið.
Ég hef fjórum sinnum farið í göngur í austurleit á Flóa- og skeiðamannaafrétt að Skeiðamannafitum, það eru þrjár nætur í fjallakofum en fimm dagar í heildina talið, sex með réttardegi.
Fátt finnst mér dásamlegra en að smala afréttinn, langt frá næstu mönnum í leit að kindum í allskonar veðri, frá sólarupprás til myrkurs.
Ég hef ákveðið að næsta haust ætla ég að sækja um lengri göngur.
Myndirnar eru teknar í Reykjarétt á Skeiðum 17. september í ár þegar ég var mætt í enn einar réttirnar til að draga kindur, hitta fólk og ríða fjallhestunum heim. Sorglegt en satt þá lýsir efri myndin réttarstemningunni; margt fólk en fátt fé.